| Eftirfarandi er liður úr fundgerð frá
sveitarstjórnarfundi þann 4. desember 2008. Sjá
einnig www.thingeyjarsveit.is
5. Friðlýsing alls vatnasviðs Skjálfandafljóts
– umsögn
Sveitarstjóri lagði fram svohljóðandi drög
að umsögn til umhverfisnefndar Alþingis um friðlýsingu
alls vatnasviðs Skjálfandafljóts:
,,Þingeyjarsveit leggst eindregið gegn því
að að allt vatnasvið Skjálfandafljóts
verði friðlýst.
Margar ár og lækir renna í Skjálfandafljót.
Bændur hafa víðsvegar á vatnasvæði
Skjálfandafljóts sett upp litlar heimarafstöðvar
og/eða smávirkjanir. Með friðlýsingu alls
vatnasviðs Skjálfandafljóts væri verið
að takamarka afkomumöguleika fólks á svæðinu
verulega.
Friðun sjálfs Skjálfandafljóts og upptaka
þess er allt annað mál. Nú er unnið
að aðalskipulagi Þingeyjarsveitar og vonir standa
til að því verði lokið um mitt næsta
ár. M.a. hefur verið rætt um að friða fljótið
en þar falla undir þeir staðir sem þegar eru
á náttúruminjaskrá, eins og Goðafoss,
Aldeyjarsfoss, Hrafnabjargarfoss og Þingey.
Rétt þykir að benda á að skipulagsvaldið
á vatnasviði Skjálfandafljóts er á
hendi Þingeyjarsveitar utan þess sem fellur undir hálendisskipulag.
Það væri því í hæsta máta
óeðlilegt að ríkisvaldið væri að
grípa fram fyrir hendur sveitarfélagsins í
skipulagsmálum meðan þau mál eru enn á
vinnslustigi.“
Samþykkt samhljóða.
|