Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar andvíg friðun!

 
 

40. fundur sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar var haldinn í gær og var tekin fyrir beiðni um umsögn að tillögu til þingsályktunar um friðlýsingu Skjálfandafljóts og alls vatnasviðs þess ofan Mjóadalsár.

Svohljóðandi umsögn var samþykkt samhljóða í sveitarstjórn.

 

Þingeyjarsveit leggst eindregið gegn því að allt Skjálfandafljót verði friðlýst.

Nú er unnið að aðalskipulagi Þingeyjarsveitar og vonir standa til það verði staðfest fyrir mitt næsta ár. M.a. hefur verið rætt um að friða hluta Skjálfandafljóts en þar falla undir þeir staðir sem þegar eru á náttúruminjaskrá, eins og Goðafoss, Aldeyjarfoss, Hrafnabjargafoss og Þingey. Í vinnudrögum aðalskipulags er lagt til að fallið verði frá öllum virkjunaráformum í Skjálfandafljóti, þar á meðal Hrafnabjargavirkjunar. Hins vegar vill sveitarfélagið áskilja sér rétt til að nýta vatn úr Skjálfandafljóti til vistvænnar starfsemi, eins og t.d. kælivatnstöku fyrir tölvugagnaver þar sem vatninu yrði skilað aftur í fljótið.

Sveitarstjórn leggst í sjálfu sér ekki gegn því að vatnasvið Skjálfandafljóts verði friðlýst ofan Mjóadalsár. Sveitarstjórn telur eðlilegt að afstaða til slíkrar friðunar verði tekin í aðalskipulagi sveitarfélagsins áður en ríkisvaldið tekur fram fyrir hendurnar á sveitarfélaginu í skipulagsmálum. Sveitarstjórn og skipulagsnefnd hafa í vinnu sinni við aðalskipulagsgerðina lagt sig fram um að gæta að umhverfisþætti skipulagsmála í hvívetna."

 

Fundargerð sveitarstjórnar er hér: Fundur 10. desember 2009

 

 

 

 


 

 

 
     
 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
 

Til baka á forsíðu